|
Matthew Perry fæddist 19. ágúst 1969 í Williamstown, Massachusetts, en var alinn upp í Ottawa, Ontario. Foreldrar hans eru Suzanne og John Perry, en þau voru skilin áður en eins árs afmælis dagur Matthews rann upp. Pabbi Matthews er þekktur sem gaurinn í "Old Spice" auglýsingunum. Mamma hans er fyrrverandi fréttamaður og var einu sinni fjölmiðlafulltrúi Pierre Trudeau. Matthew hefur mjög gaman af tennis og stóð sig mjög vel í þeirri íþrótt á sínum yngri árum, en hann byrjaði þegar hann var aðeins fjögurra ára.
Matthew byrjaði að leika þegar hann var í sjöunda bekk. En þá lék hann „gunslinger" sem hét Arriba Geneva í „The Life And Death Of Sneaky Fitch"
Þegar Matthew var 10 ára giftist móðir hans kanadískum fréttalesara sem bar nafnið Keith Morrison. Þau eignuðust saman fjögur börn, Caitlin, Emily, Willy og Madeline. Þegar Matthew varð 15 ára flutti hann til L.A. til að athuga hvort hann kæmist eitthvað áfram í tennis og leiklist. Hann flutti til föðurs síns þar og konu hans Debbie og dóttur þeirra Marie. Hann fór í sína fyrstu stóru keppni í tennis í bandaríkjunum en því miður gekk ekki allt of vel og ákvað hann því að athuga hvort hann kæmist eitthvað áfram í leiklist. Matthew þreifaði fyrir sér í leiklistinni frá '85-'93. En árið 1993 ákváðu Matthew og vinur hans Andrew Hill að skrifa sinn eiginn þátt, sem hét Maxwell´s House, sem var um líf tuttugu og eithhvað ára vina. En NBC sjónvarpsstöðin hafði því miður mjög líkan þátt í gangi sem síðar fékk nafnið "Friends" Hann fékk hlutverk Chandler Bing, í Friends, árið 1994.
|