Internet Store and Ecommerce Solution Provider - Free Web Site - Free Web Space and Site Hosting - Web Hosting - High Speed Internet
Search the Web

Home Page
Golden Globe Awards 2003
Jennifer Aniston
Courteney Cox Arquette
Lisa Kudrow
Matt LeBlanc
Matthew Perry
David Schwimmer
Jen pictures
Jen & Brad pictures
Guestbook
FRIENDS ???
COURTENEY COX ARQUETTE

Courteney Cox fæddist í Birmingham, Alabama 15. júní árið 1964. Courteney er skírð í höfuðið á mömmu sinni, en mamma hennar er heimavinnandi húsmóðir. En pabbi hennar, Richard, er verktaki. Þau skildu þegar Courteney var 10 ára eftir 19 ára hjónaband. Hún bjó hjá mömmu sinni, bróður og tveimur systrum hennar. Bæði mamma hennar og pabbi hafa gifst aftur. Hún útskrifaðist úr framhaldsskóla árið 1982 og fór þá að læra arkitektúr í Mt. Vernon háskólanum í Washington. Hún fékk ekki fyrst athygli fyrr en Bruce Springsteen togaði hana upp á svið til að dansa í lok myndbandsins "Dancing In the Dark". Árið 1994 komst Courteney á topp 50 listann yfir fallegasta fólkið, hjá People Magazine. Árið 1985 var Courteney í NBC þáttaröðinni "Misfits Of Science", en hann var aðeins sýndur í nokkra mánuði. Svo lék hún kærustu Michael J. Fox í þáttaröðunum "Family Ties". Einnig lék hún á móti Jim Carrey í myndinni "Ace Ventura: Pet Detective", sem var í rauninni hennar fyrsta stórmynd. En stuttu eftir þetta fékk hún hlutverk Monicu í hinum gríðvinsæla þætti "Friends" og stendur hún sig bara mjög vel þar. Courteney er gift leikaranum David Arquette.